Er hægt að fá leið á því að skoða fallega skó?
Held ekki! Þessir fallegu og rokkuðu skór eru í vor/sumarlínum helstu skóhönnuða heims og eru algjört augnakonfekt. Rokkaðir, glamúrlegir og mega töff. Eitthvað fyrir alla, því bæði er mikið um hælaskó, lágbotna, skó með opna tá og fylltan hæl.
Fyrir þær sem vilja ganga á háum hælum en finnst það óþægilegt þá mæli ég með fylltum hæl. Þú þreytist síður í fótunum á þannig skóm. Eins er gott að æfa sig heima í nokkra daga á skónum áður en þú ætlar að nota skóna í heilan dag eða jafnvel fara út á lífið.
Kíkið samt á þessa skó, þeir eru bara gullmolar í dulargervi…mmm þvílíkt laugardagsnammi að horfa á þessa fegurð!
_____________________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.