Roberto Cavalli er þekktur fyrir sína fallegu hönnun
Haustlínan frá honum er algjörlega dásamleg svo falleg er hún. Hver flíkin á eftir annari er bara hrein fegurð. Hann blandar saman rokkáhrifum við klassík. Er ekki hrættur við munstur og liti en haustlínan hans er full af litum og hreyfingu.
Roberto Cavalli er fæddur og uppalinn í Flórens Ítalíu, hann býr þar ásamt konu sinni sem hannar við hlið hans. Í þessari haustlínu vildu þau ná smá ítölskum anda inn í hönnun sína, draga fram rómantísku áhrifin sem gömlu byggingarnar og málverkin skarta í Flórens.
Leður og loðið skinn er eins mjög áberandi hjá honum og blandar hann því saman. Útkoman er bara sjúklega smart!
Kvenleg, ögrandi og mjög falleg lína frá meistara Cavalli!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.