Rihanna er nú að hanna sína aðra línu fyrir River Island – Army munstur, leður, Co-ords, rendur, sporty og maxi kjólar eru allsráðandi.
Ég var ekki hrifin af fyrri línu Rihönnu eins og ég skrifaði um fyrir stuttu en ég er svolítið skotin í þessari, er sérstaklega hrifin af oversized leðurbuxunum sem eru að koma mjög sterkt inn í haust.
Fötin koma í búðir í valdar verslanir River Island 12.september. Ég er svo óheppin að rétt missa af því þar sem ég fer til London í enda ágúst! Týpískt…
Rihanna póstaði nokkrum myndum af sér í afrakstrinum og rokkar það!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.