Ég var búin að bíða spennt eftir samstarfi Rihönnu og River Island sem kemur í búðir þann 5.mars- enda er Rihanna mikið style-icon!
Ég varð þó fyrir frekar miklum vonbrigðum með línuna. Ýmist finnst mér flíkurnar hreinlega bara ljótar eða alveg rosalega basic. Ekkert nýtt og ferskt. Það voru þó nokkrar flíkur sem mér fannst flottar. Ég er kannski of dómhörð, ég veit það ekki. Bara bjóst við svo miklu meira af henni! Hvað finnst ykkur?
Hér eru nokkrar misflottar:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.