Það er engin önnur en söngkonan Rihanna sem mun prýða auglýsingar Balmain næsta vor.
Rihanna og Oliver Rousteing, yfirhönnuður Balmain eru góðir vinir og segir Oliver hana hafi verið innblástur hans fyrir komandi vorlínu svo það lá beint við að biðja hana að verða andlit auglýsingaherferðarinnar. Hér eru örfá sýnishorn af því sem koma skal…
Auglýsingarnar voru myndaðar af ljósmyndaranum Inez van Lamsweerde í New York borg í síðasta mánuði og miðað við þetta litla brot sem við sjáum hér stefnir þetta í vel hepnaða auglýsingaherferð.
Vel gert Balmain!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com