Maxi-pils með hárri klauf, stuttir og stelpulegir kjólar, 70’s útvíðar buxur og glitrandi jakkar er eitthvað af því sem að stílistinn og hönnuðurinn Rachel Zoe vill að þú klæðist næsta sumar…
…Ég verð að segja að mér finnst þessi Resort-lína bara nokkuð flott en hún inniheldur mjög Zoe-legar flíkur þannig að hippa-glamúrinn er númer eitt, tvö og þrjú! Það sem ég fíla best er fjölbreytnin en í línunni má finna 100% partí kjóla en einnig útvíðar hippa-buxur og ‘casual’ skyrtur.
Hér fyrir neðan er smá myndband sem sýnir Rachel sjálfa tjá sig um Resort 2012 línuna…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=CTt4U4XxYQk[/youtube]
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.