Það er hönnuðurinn Adam Lippes sem hannar undir nafninu ADAM. Þessi nýja Resort lína hans er einstaklega vel heppnuð og flott að mínu mati…
…Mikið um ´basic´ töffaralegar flíkur í bland við krúttleg pallíettu mini-pils. Hvítt, blátt og svart er einkennandi fyrir þessa klæðilega línu sem sem gæti breytt hverjum sem er í mega kúlista á ´no time´!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.