Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei verið mikið fyrir rauð föt þrátt fyrir að gjörsamlega elska rauðan varalit og rautt naglalakk…
…En eftir að hafa eytt dágóðum tíma á Net-A-Porter um daginn og látið mig dreyma þá get ég með sanni sagt að ég hefði ekkert á móti þessum rauðu flíkum og fylgihlutum í fataskápinn. Rauði liturinn er einstaklega áberandi á Net-A-Porter um þessar mundir og kannski ekkert svo skrítið …mjög kynþokkafullur litur.
Dásemd!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.