Það hefur mikið verið um að vera í vikunni sem leið, rauðir dreglar hist og her og stjörnurnar hafa varla undan að skipta um dress fyrir næsta partý!
Förum yfir það helsta
Vanity Fair eftirpartýið
Árlega heldur Vanity Fair eftirpartý eftir Óskarinn. Þangað mæta óskarsverðlaunahafarnir og aðrir gestir, auðvita í sínu fínasta pússi. Sumir skipta um klæðnað milli atburða, öðrum finnst óþarfi að splæsa tveimur dressum fyrir eitt kvöld.
Sumar ákváðu þó að sýna aðeins meira en aðrar og skilja nærbuxurnar eftir heima!
Knowles systur skemmtu sér þrusu vel í partýinu – þetta hlýtur að hafa verið gott partý!
Elle verðlaunin
Elle Style award fór fram tveimur dögum eftir Óskarinn og þangað voru meðal þessar stjörnur mættar…
Vá Cara! Cara Delevingne í Vivienne Westwood, Red Label
Rokkari einn daginn – ladylike þann næsta! Hún púllar þetta allt saman!
Taylor Swift var í þessum umtalaða græna kjól frá Julien MacDonald
Laura Jackson í látlausum og fölbleikum kjól frá Eudon Choi. Sætt!
Sumir tóku þetta svo alla leið eins og Gwendoline Christie. Hönnun: Giles
Maggie Gyllenhaal í kjól frá Roland Mouret og veski frá Proenza Schouler við.
Elegant lúkk
Abbey Clancy klæddist Marc Jacobs
Roksanda Ilincic klæðist sinni eigin hönnun
Síðust en ekki síst: Olivia Wilde.Þið trúið því kannski ekki en hún klæðist einfaldlega H&M – H&M Conscious Exclusive reyndar
Bresku Óskarsverðlaunin
Sama dag og elle verðlaunin voru haldin hátíðleg fóru bresku tónlistarverðlaunin fram. Helstu fréttir af hátíðinni voru þó þær að Madonna hrundi niður af sviðinu meðan hún söng fyrir áhorfendur. Við ætlum þó að halda okkur við tískuna:
Taylor Swift í Roberto Cavalli
Janelle Monae klæddist flauelis dragt frá Emporio Armani.
Rita Ora var í samfesting frá Zuhair Murad. Samfestingurinn er þakinn Jessica McCormack kristöllum
Karlie Kloss í Tom Ford
Paloma Faith í Giorgio Armani Privé. Behati Prinsloo eiginkona Maroon 5 söngvarans, Adam Levine, klæddist mjög svipuðum kjól á Óskarnum fyrr í vikunni. Sjá hér.
Spice Girls skvísan Emma Bunton var mætt á hátíðina í svartri dragt.
Töffarinn Cara Delevingne klæddist Saint Laurent
Þéttpökkuð vika! Ég kvarta ekki því það er alltaf jafn gaman að skoða tískuna á rauða dreglinum
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com