Skartið gerist vart klassískara en falleg perlu hálsfesti. Þær passa við allt og eru svo elegant.
Ég hendist alltaf í svartan kjól, set á mig fallega rauðan varalit og perluhálsfesti ef ég veit ekki í hverju ég á að vera. Þetta virkar alltaf, sama hvert maður er að fara enda algjörlega klassísk samsetning.
Perlur detta aldrei úr tísku! Þær eru eins og demantarnir… eilífar!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.