Hérna fáum við að sjá brot af pre-fall 2012 línunni frá Prabal Gurung en ég verð að segja að mér finnst hún aaansi svöl…
Línan er full af munstruðum flíkum í bland við háglans leðurstuttbuxur og leðurpils. Í línunni má finna margar hversdagslegar og klæðilegar fíkur en líka nokkra glamúr-kjóla sem ættu helst heima á rauða dreglinum.
Fylgihlutirnir eru svo vægast sagt flottir en sólgleraugun eru klárlega í uppáhaldi hjá mér…tjah, og þessir skór eru reyndar líka alveg ‘to die for’! Hárið á fyrirsætunum var haft áreynslulaust og töffaralegt á móti ljósbleikum varalit sem fullkomnaði heildarútkomuna.
Glæsileg lína…svo skemmtir þessi baby-bleiki bakgrunnur ekki fyrir!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.