Pattra er íslensk stelpa sem býr í Svíþjóð ásamt Elmari unnusta sínum sem spilar þar fótbolta.
Fataskápurinn hennar virðist vera stærri en Kringlan. Hún á endalaust magn af fötum þessi stelpa, og alltaf flott!
Það skiptir engu máli í hverju hún er, það virkar alltaf! Ein af mínum uppáhalds bloggurum. Svo er hún alveg ótrúlega falleg og brosmild stelpa.
Bloggið hennar HÉR
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.