Patricia Field er skrautleg og skemmtileg kona. Hennar helsta verk er stílisering Sex and the city þáttanna og myndanna.
Þessir skór eru á 112 dollara eða um 13.000 kr. sem verður að teljast mjög gott fyrir svo klikkaða skó! Gæti þú labbað á þessu?
Patricia rekur skemmtilega vefverslun sem ég hef áður fjallað um. Á síðunni eru bæði karla og kvennaföt, skór, skartgripir og fleira skemmtilegt. Hún hannar sum fötin sjálf og svo eru margir hönnuðir sem fá að selja á síðunni hjá henni.
Verðin eru mjög mismunandi en margt er á góðu verði. Á síðunni má bæði finna skó á 10.000 kr. og á 400.000 kr. Ég hef nokkrum sinnum verslað á síðunni hjá henni og það var ekkert vesen að fá sent til Íslands eins og gengur og gerist á mörgum fallegum vefverslunum.
Hérna eru nokkrar gersemar sem ég hefði ekkert á móti að “setja í poka”
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.