Þessi nýja og glæsilega lína frá H&M heitir Conscious Exclusive. Línan er full af virkilega flottum og sparilegum flíkum…
…Auglýsingaherferð línunnar er ekki af verri endanum en það er fyrirsætan Dorothea Barth Jorgensen sem er andlit hennar.
Ég held bara að þetta sé ein sú flottasta lína sem ég hef séð frá H&M, allavega líta flíkurnar einstaklega vel út á Doratheu.
Kokteilkjólar, rómantískir síðkjólar og sparilegir samfestingar er eitthvað sem má finna í línunni og allt á góðu verði eins og H&M er þekkt fyrir.
Lúxus!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.