Ríka pabbastelpan Tamara Ecclestone (27) getur ekki kvartað yfir því að eiga ekki nóg af skóm og töskum.
Hlustaðu nú…
Hún á yfir 100 pör af Christian Loubotin hælum, 15 pör af Ugg’s, 20 pör af strigaskóm og eitthvað af Ginas og Jimmy Choo. Í raun á stelpan svo mikið af skóm að hún gæti hæglega opnað verslun. Og það stóra verslun!
En þetta er aðeins brot því auðvitað á hún hafsjó af handtöskum og kjólum. Til dæmis um tuttugu Hermés töskur og að minnsta kosti fimm ‘clutch’ töskur frá Alexander McQueen svo fátt eitt sé nefnt. Hún segist yfirleitt fara bara einu sinni í hvert ‘átfitt’ enda til hvers að gera það oftar? Ha?
Þegar hún fær svo leið á fötunum eru þau send til Króatíu þangað sem móðir hennar rekur ættir sínar. “Mamma er hrikalega hneyksluð á því hvað ég eyði miklu í föt. Hún vill að allt sem fellur til fari á heimili sem þurfa á því að halda.”
Tamara og Petrea Ecclestone eru dætur Bernie Ecclestone sem á Formúlu 1 keppnina.
Kíktu hér á myndir af stelpunni, skónum hennar og endalausu magni af kjólum og töskum. Eins og sjá má á þessum myndum hefur hún líka keypt sér fleira en föt fyrir peningana hans pabba, meðal annars ný brjóst og nettara nef…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.