Olivia Palermo er fashionista af bestu gerð og mitt uppáhald þegar kemur að tísku og innblæstri. Alltaf einstaklega vel klædd.
Olivia og unnusti hennar, módelið Johannes Huebl giftu sig óvænt um helgina. Bæði auðvita óaðfinnnaleg til fara.
Olivia fór óvenjulega leið og klæddist ekki brúðarkjól á stóra deginum heldur samanstóð klæðnaður hennar af stuttbuxum, fallegu tjull pilsi með hárri klauf og kasmír peysu, allt hannað af Carolina Herrera. Johannes klæddist hvítum Marc Anthony Hamburg jakkafötum.
Það sem mér finnst skemmtilegast við dress Oliviu eru bláu Manolo Blahnik skórnir. Það þarf sko ekki alltaf að vera hvítir skór við hvíta brúðarkjólinn!
Mér finnst einstaklega gaman að fylgjast með þessu topp pari, svo ástfangin og svo fín, alltaf…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com