Ein sú allra heitasta og leiðandi í tísku í dag er án efa hin gullfallega Olivia Palermo, sláandi smekkleg og smart hvort sem er í gallabuxum og bol eða uppáklædd í hæstu hælum.
Oliva Palermo er fædd 28. febrúar 1986 og eins og eftirnafnið gefur til kynna og fagurt suðrænt lokkandi augnaráðir er faðir hennar frá Suður-Ítalíu.
Þessi glæsilega unga og hæfileikaríka fegurðardís og smekkkona skaust hratt og örugglega uppá stjörnuhimininn eftir þátttöku í raunveruleikaþáttunum The City.
Til gamans má geta að stórglæsilegur eiginmaður hennar heitir Johannes Huebl, hann á ættir sinar að rekja til Þýskalands og gæti maður hreinlega borðað hann með augunum, geysilega vel heppnaður karlmaður.
Ég hvet alla sem áhuga hafa á tísku að fylgja tískugyðjunni á Instagram @oliviapalermo og í guðs bænum tékkið á henni á Pinterest!
Dóra elskar að föndra við snittugerð en matur hefur alltaf haft mikil áhrif á hennar líf. Svo mikil að Dóra byrjar flesta morgna á að hugsa um hvað eigi að vera gott í kvöldmatinn. Hún býr á Seltjarnarnesi, á tvær æðislegar stelpur og sætasta golfara í heimi (að ólöstuðum okkar). Dóra lærði til lyfjatæknis árið 2001 en áhugamál hennar snúast um allt sem tengist mat, hreyfingu, dansi og útivist.