Flestar konur fara ekki út úr húsi án þess að vera með veski eða tösku á handleggnum.
Fyrir sumum er veskið meira að segja stöðutákn. Rándýr taskan segir til um hvaða status þú hefur í tilverunni. Vinkona mín ein á einmitt tösku sem kostar álíka mikið þrjár húsaleigur. Hún sagðist stundum ekkert botna í því hvað hún væri að gera með þetta á handleggnum. Hvað ef töskunni væri stolið!? Hún kostar mikið meira en allt það sem er í henni! Er hægt að kaupa sérstakar töskutryggingar?
Flestum konum hér á landi er nokk sama þó þær séu með töskur sem bera engin merki um stöðutákn. Taskan þarf bara að fara vel við heildarlúkkið hvort sem hún er frá Hermés eða HM og flestar eigum við fleiri en eina.
Hér er flott samansafn mynda af allskonar töskum sem reyndar kosta flestar skildinginn og eru margar dásamlega flottar. Ég myndi sannarlega kaupa eina eða tvær ef ætti fullt af money money money…
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.