Ert þú komin með leið á kassalaga skóflunöglum með hvítu french? – Já ég líka! – Þá er Rainbow nails eitthvað fyrir þig!
Glimmer, hauskúpur, cupcakes, semelíusteinar, gaddar og fallegir litir einkenna neglurnar sem hin kanadíska Catherine gerir. Og það besta er – hún er búsett á Íslandi!
Ég rakst á mynd af nöglum eftir hana á Instagram og fór að skoða fleiri myndir og VÁ, hún er ekkert smá klár! Svo er hún ótrúlega skemmtilegur karakter sjálf. Með falleg húðflúr og mismunandi háralit dag eftir degi.
Ég hef ekki farið til hennar sjálf en ég verð að prófa fljótlega!
___________________________________________________________
Allar upplýsingar má finna á facebook síðu Catherine.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.