Þetta bjarta og fallega ‘lookbook’ frá Chanel sýnir okkur hvað koma skal í sumar…
….Það er fyrirsætan Stef van der Lann sem situr hér fyrir í æðislegum flíkum í boði Karl Lagerfeld.
Svarti og hvíti liturinn er áberandi í bland við ljósa pastel liti sem gerir þetta svo rómantískt.
Klassíska Chanel-‘lúkkið’ er algjörlega til staðar en ‘tweed’ efnið er notað óspart og perlurnar eru á sínum stað.
Svo er förðunin æði en silfurlitaður augnskuggin gefur þessu nútímalegt yfirbragð.
Það var laglegt!
_______________________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.