Jæja! Nú er allt orðið tjúllað inná Net-a-Porter vefversluninni en nýja línan hans Karls Lagerfeld var að detta í sölu og nú þegar er partur af henni uppseldur…
…Net-a-Porter síðuna er búið að troðfylla af einhverjum myndböndum í tilefni línunnar. Til dæmis eru nokkur ‘feik’ viðtöl við meðlimi úr Karl-trúarflokknum (hvað sem það nú er) og myndband af Karl Lagerfeld að taka viðtal við Karl Lagerfeld ….mjög súrt.
Þessi lína er bara nokkuð flott að mínu mati en vó, róum okkur á æsing. Línan nýja einkennist af svarta og hvíta litnum (hver hefði trúað því upp á Lagerfeld) en í leiðinni er hún er meeega glitrandi og glamúröss. Lovesss it!
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að skoða nokkra hluti línunnar nánar:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.