Selected Homme/Femme er frábært danskt merki sem tilheyrir Bestseller regnhlífinni. Verslunin hefur hingað til aðeins verið í Smáralind en ný herrafatadeild opnaði í Kringlunni á dögunum.
Það var að vonum margt um manninn og margir kátir strákar samankomnir í búðinni sem verður sífellt vinsælli meðal íslenskra karlmanna enda um vandaðar flíkur að ræða, góð verð og breitt bil í stærðum og sniðum.
Herðabreiðir strákar eru t.d. sérlega ánægðir með Selected því þar fást skyrtur sem passa á þá. Skórnir frá Seleceted eru mjög smart og það sama gildir um gallabuxur. Hönnun nýju búðarinnar í Kringlunni er líka mjög vönduð svo það er gaman að versla þar. Líttu endilega við.
Hér er fullt af myndum frá opnunardeginum en þess má geta að í dag er 20% afsláttur af öllum vörum og Kringlan er opin til kl 18:00.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.