Sama hvort það er kjóll, skór, buxur, taska, naglalakk eða varalitur..Appelsínugulur er MÁLIÐ í sumar!
Ég elska þennan lit þótt mér hefði aldrei dottið það í hug.
Gæti ekki verið sumarlegra! Svo má alveg vera smá klikkaður og vera í appelsínugulum kjól og með appelsínugulan varalit. Ég geri það allavega! híhí…
Ég keypti varalit frá MAC sem heitir Morange. Hinn fullkomni appelsínuguli varalitur!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.