>> Donatella Versace er bæði djörf og glamúrus þetta haustið. Hér má sjá ansi þrönga og flotta hlýralausa leðurkjóla sem minna jafnvel á korsilett eða eitthvað úr erótísku safni.
Kjólarnir eru skreyttir krossum, göddum, flaueli og fullt af svörtum skrautsteinum. Kjólarnir eru stuttir og síðir, yfirhafnirnar allflestar dásamlegar (sérstaklega stuttu jakkarnir) og fyrirsæturnar tágrannar (aðeins of eins og alltaf) með topp að hætti Rooney Mara.
Gerðu svo vel Ítalía…
…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.