Mikil umbreyting hefur orðið á Nicole Richie síðustu ár frá því hún var í ruglinu (fatalega séð) með Paris Hilton.
Í dag er Nicole með eindæmum smart kona hvort sem á rauða dreglinum eða dagsdaglega. Hún hefur oftar en ekki gefið tóninn fyrir það sem koma skal í tískunni og flestum tískuáhugakonum er enn ferskt í minni hversu vel samstarf hennar og stílistans Rachel Zoe tókst á sínum tíma.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.