Ég rakst á mjög skemmtilega Tumblr síðu um daginn en á henni birtast spennandi myndir frá ritstjórum Style.com…
…Það er séstaklega gaman að fylgjast með þessari myndadagbók akkúrat núna þar sem fólkið á bakvið myndavélina hefur verið á þeytingi um allan heim til að sækja allar tískuvikurnar. Þá má sjá myndir sem eru teknar af tískusýningunum sjálfum, því sem gerist baksvið, fyrirsætum í förðun, fallegum fylgihlutum, götutísku og frægu fólki svo eitthvað sé nefnt.
Sjáðu hvað þetta er fínt!
Smelltu HÉR til að kíkja á þessa áhugaverðu myndasíðu!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.