Haust og vetrarlínan frá Monique Lhuillier árið 2012/2013 er svo sannarlega augnakonfekt en eins og áður sagði sækir hún innblásturinn í línuna í eldfjöll, hraun og alla þá dýrð sem fylgir þeim.
Monique er þekkt nafn í brúðarkjóla – og tískuheiminum og er óhætt að segja að ég varð gersamlega agndofa af fegurð kjólanna og fatanna sem eru í línunni hjá henni núna. Kjólarnir hennar eru ávallt fágaðir og flottir hvort sem það eru brúðarkjólar eða tískukjólar og er hún að verða sífellt vinsælli hjá fræga fólkinu. Myndir af línunni má sjá í myndasafninu hér að neðan, búðu þig undir dásamlega fegurð.
Fallegt og fágað!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig