Miranda Kerr átti drenginn Flynn fyrir níu mánuðum en þessi fallega kona var ekki lengi að koma sér í form og ófeimin pósar hún nakin í eldrauðum hælaskóm frá Dolce & Cabbana.
Miranda Kerr er kærasta leikarans Orlando Bloom (Pirates of the Caribbean) og hefur varla tekið hlé frá fyrirsætustörfunum eftir fæðingu sonar þeirra. Hún var mætt á tískusýningarpallinn aðeins þrem vikum eftir að Flynn fæddist og með drenginn á brjósti á meðan verið var að gera þær klára fyrir pallinn. Núna níu mánuðum síðar er hún enn með þann litla á brjósti.
Hér pósar Miranda í tímaritinu Harpers Bazaar í fallegum fatnaði frá m.a. Emilio Pucci, Dolce & Cabbana, Chloé og með fallega Bulgari skartgripi.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.