Pastel-grænt og prjónaflíkur eru greinilega málið í vetur ef marka má nýja línu frá H&M…
…Það er sænska fyrirsætan Frida Gustavsson sem er aðalhetja auglýsingaherferðar fyrir línuna sem hefur að geyma æðislegar hlýjar peysur, aðsniðna jakka, kápur og þröngar buxur í þemalit línunnar- pastelgrænum!
Og þessi mintugræni litur kemur ótúlega vel út við rauðan varalit eins og sjá má á nokkrum af þessum myndum.
Skemmtileg lína!
________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.