Leikkonan Mila Kunis er í aðalhlutverki í þessari nýju auglýsingaherferð frá Miss Dior…
Auglýsingarnar sýna Milu sem elegant dömu á sjötta áratugnum (þó að leikmunirnar passi ekki alveg inn í það tímabil) sem er hundelt af ljósmyndurum en lifir mjög ‘glamúröss’ lífstíl. Myndirnar eru allar svarthvítar og Mila klæðist alltaf svörtu á þeim. Hárið er uppsett og stórt og minnir óneitanlega á Jackie Kennedy.
Fallegar myndir og flottar flíkur – kíktu…
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.