Mér þykir óskaplega gaman að fletta í gegnum Instagram tískuvörumerkisins Miista sem sérhæfir sig í klassískum, frumlegum og vönduðunm skófatnaði.
Merkið heillar mig einna helst vegna þess að persónuleiki þess er svo skemmtilegur en ég hef mikið gaman af því að rýna í persónuleika vörumerkja (sjá hér).
Í iðjuleysi gærdagsins rakst ég á heilan helling af fallegum skó samsetningum og ljósmyndum á Instagram síðu Miista. Merkið er breskt en mér hefur alltaf fundist það hafa ákveðið franskt yfirbragð (sem ég kann vel að meta).
Pallíettubuxur! Af hverju ekki?!Virkilega falleg blússa.
Klassískt Miista. Farðu og sittu á kaktus.
Kannski bara þessum. Miista póstar regulega allskonar skemmtilegum og listrænum myndum í bland við myndir af samsetningum og skóm.
Lestu einnig:
Miista gerir allt rétt,
Coca Cola er afi þinn: Secrets of the Superbrands – Frábærir þættir og
Miista – Skrítnir og klassískir skór, augnakonfekt fyrir skófíkla
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.