Í fyrradag birti ég færslu með því sem er væntanlegt í hillurnar hjá HM búðunum í haust.
Þar sástu myndir af frekar hversdagslegum en smart fatnaði á bæði dömur og herra en hér má sjá vandaðar myndir úr því sem kallast Look Book.
Mér finnst strákatískan þetta haustið alveg sérlega skemmtileg. Minnir svolítið á gamla daga, pínu röff og karlmannlegir “hermanna” jakkar og skór en líka kósý hnepptar peysur.
Dömufatnaðurinn er að sama skapi flottur en þarna kennir ýmissa grasa. Við erum enn með kögur, blúndur og leður en líka silkiefni og ljósari tóna, útvíð pils og beinar kápur. Flott haust fyrir HM fíklana.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.