Í nýjustu auglýsingaherferð Diet Coke má sjá fatahönnuðinn Marc Jacobs sitja fyrir ásamt fyrirsætunni Ginta Lapina…
…Marc Jacobs, sem nú er listrænn stjórnandi Diet Coke, er klæddur í svart skotapils í öllum auglýsingunum á meðan Ginta Lapina skartar nokkrum mismundandi dressum í stíl við ofvaxnar kókflöskurnar sem prýða auglýsingarnar.
Þessar skemmtilega skreyttu flöskur munu verða seldar í takmörkuðu upplagi víða um Evrópu…ætli Ísland fái að vera með?
_____________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.