Marc by Marc Jacobs er notendavæn lína frá hönnuðinum. Hann frumsýndi línu sína fyrir haust/vetur 2011 nýverið og það var svosem ekkert nýtt af nálinni.
Það var eins og hann hefði komist í sníðabók frá 1975 og endurgert flíkurnar.
Ég er reyndar hrifin af tísku áttunda áratugarins og finnst margt mjög smart.
Fyrir þá sem ekki vilja klæðast notuðum fatnaði þá er semsagt hægt að kaupa “seventies” fatnað í Marc Jacobs verslunum í haust 😉
Kíktu í albúmið…
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.