Ljósmyndarinn Marc Da Cunha Lopes hefur sérstakt dálæti á því sem er svolítið súrrealískt og ‘skrítið’. Þetta eigum við sameiginlegt…
…enda fór ég pínu úr líkamanum þegar ég rakst á þessar frábæru myndir eftir meistarann. Seríuna kallar hann Lulu en hér má sjá litla týpu pósa með vinalegri hvítri rottu. Brilliant stemmnning, fyndin og skemmtileg – minnir á Lísu í Undralandi.
Marc Da Cunha Lopes er fæddur árið 1979 og sérhæfir sig aðallega í auglýsingaljósmyndum en meðal viðskiptavina hans eru fyrirtæki á borð við Prada, Playstation, Fiat, Nike og Reebok…
en hér er LULU!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.