Haustlínan frá Fendi er litrík og flott í ár. Mikið um fallega loðfelldi, pelsa, loðvesti og kjóll úr loðfeldi … hversu frábært er það?!
Litasamsetningarnar eru algjörlega stórkostlegar, fallegir hreinir litir sem passa vel við haustið og veturinn.Venjulegu haustlitirnir fengu að víkja fyrir enn fegurri litum. Fölbleiki liturinn og ferskjuliturinn verða einnig áberandi enda mjög kvenlegir og flottir.
Samspil leðurs og rússskinns er einnig mjög áberandi hjá Fendi fyrir haustið 2013 og kemur einstaklega vel út.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.