Rachel Lynch er ljóshærð stelpa sem heldur útí tískublogginu I HATE BLONDE
Rachel er með skemmtilegan fatastíl. Mikið af pastel litum blandað við svart. Hún virðist eiga ALLA liti af ÞESSUM skóm sem ég þrái meira en allt að eignast. Öfund! Svo á hún stórt safn af sólgleraugum sem hún er dugleg að nota.
Áfram fröken Lynch!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.