Ég rakst á þennan myndaþátt á daglegu vafri mínu um netið og varð strax ástfangin upp fyrir haus!
Ég er alvarlega farin að íhuga að reyna að yfirgefa svarta þjóðbúninginn í sumar og reyna eitthvað líflegra og meira öðruvísi eftir að fletta í gegnum þessar fallegu myndir sem voru í janúar útgáfu Vouge í Þýskalandi.
Ljósmyndari: Greg Kadel
Stílistar: Nicola Knels & Lynn Schmidt
Módel: Carola Remer
_____________________________________
Tinna hefur brennandi áhuga á næstum öllu en þó líklega mest á sjónvarpi og kvikmyndum, án þess þó að hafa nokkurt faglegt vit á hvorugu.
Hún er nemandi í mannfræði og starfar með náminu sem samfélagsmiðlaráðgjafi. Hún elskar allt sem kemur eldamennsku og bakstri við, og þá mest af öllu að baka íslenskar pönnukökur og að poppa örbylgjupopp. Markmið Tinnu í lífinu er að vera góð, láta gott af sér leiða og skemmta sér frábærlega á meðan.