Litað loð er búið að vera heitt í langan tíma og heldur áfram í haust.
Skemmtileg tilbreyting frá klassísku pelsunum. Sjálf elska ég litað loð og á vínrauðan pels, dökkbláan loðkraga, fjólubláan loðkraga og nýjasta viðbótin er dökkblár loðjakki með hettu sem verður ofnotaður í haust!
Fallegt fallegt!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.