Það voru eflaust margir sem tóku eftir Leighton Meester á Golden Globe hátíðinni en hún klæddist mjög fallegum kjól frá Burberry Prorsum…
…Það kom mér nokkuð á óvart að þessi rómantíski kjóll sem hún klæddist kæmi úr smiðju Burberry því að undanfarið hafa ‘collectionin’ frá þeim verið frekar rokkuð og einkennst af leðri, göddum, og stuttum pilsum og kjólum. Reyndar eru axlirnar á kjólnum mjög Burrberry-legar en mér finnst þær einstaklega flottar.
Leighton klæddist þessum ‘nude’ litaða kjól við skó frá Jimmy Choo og var með litla tösku frá Louis Vuitton. Hárið og makeupið var svo mjög frjálslegt og rómantískt í stíl við kjólinn.
Kjóllinn kemur úr Pre-Fall 2011 ´collectioninu´ frá Burberry Prorsum sem er mjög flott ‘collection’ og hér fyrir neðan getur þú skoðað það betur.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.