Þessi flotti myndaþáttur birtist í sumareintaki C magazine en það er fyrirsætan Erin Wasson sem er í aðalhlutverki…
…Erin er fædd í Texas árið 1982. Hún elskar að fara á hestbak þannig að hún tekur sig vel út á myndunum sem eru í kúrekaþema með smá rokk-ívafi. Á myndunum, sem ljósmyndarinn Hilary Walsh tók, klæðist Erin hönnun frá meðal annars Oscar de la Renta, The Row, Yves Saint Laurent, Gucci, Fendi, Givenchy og Céline.
Fallegt!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.