Lina Tesch er rúmlega tvítug stelpa frá Hamborg, Þýskalandi. Hún er ótrúlegur ljósmyndari og stílisti ég skrifaðu um sjúkan myndaþátt eftir hana fyrir stuttu (sjá hér).
Lina á kærustu sem heitir Masha. Mér finnst þær ótrúlega fyndnar saman. Þær eru með NÁKVÆMLEGA eins fatastíl og eru svoldið eins og klón af hvor annarri.
Getur ekki verið leiðinlegt að geta notað öll fötin sín saman!
Nokkrar myndir af þessum rokkuðu töffurum:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.