Kate Middleton, eiginkona Vilhjálms bretaprins, er meðal umtalaðasta kóngafólks heims og jafnframt elskaðasta.
Segja má að hún hafi tekið við af tengdamóður sinni heitinni, Díönu Prinsessu, hvað varðar áhuga bresku þjóðarinnar en henni fylgja ljósmyndarar um hvert fótmál.
Ef klæðaburður hertogaynjunnar er skoðaður má greinilega sjá hvernig hún verður æ fágaðari með aldrinum, og líklegast titlinum. Gullfalleg kona og verðug fyrirmynd ungra breskra kynsystra sinna.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.