Eins og gengur og gerist voru stjörnurnar misvel klæddar á Grammy verðlaunahátíðinni á sunnudaginn var.
Þessar voru þær best klæddu, að mínu mati:
Paris Hilton í Haus of Milani – Ciara í Emilio Pucci – Beyonce í Michael Costello – Holly Ridings – Taylor Swift í Cucci Permiere – Natasha Bedingfield í Christian Siriano
Alicia Keys
Þessi Armani Privé kjóll gerir afskaplega lítið fyrir hana Aliciu að mínu mati – annað en að glenna brjóstaskoruna. Liturinn er þó fallegur.
Pink: Hún er meiri töffari en þetta!! Þessi kjóll… æj ég veit ekki! Hvorki smart né töff í þetta sinn.
Kaya Jones: Ég á engin orð! Þetta er það allra versta!
Rita Ora: Þessi Lanvin kjóll skorar ekki hátt hjá mér – hún er þó á lista margra yfir þær best klæddu.
Skylar Grey: Í fyrsta lagi þá er þessi leðurkjóll í nákvæmlega sama lit og húðlitur hennar. Í öðru lagi er gat framan á kjólnum!
Svo eru sumir sem fara óvenjulegar leiðir. Madonna er þar á meðal
Ég get ómögulega skilið að velja sér þennan klæðnað fyrir rauða dregilinn á Grammy verðlaunahátíð, en þó er þetta töff dragt sem ég get ekki sett í flokkinn með þeim verst klæddu! Madonna fær sérflokk!
Það er hver verðlaunaafhendingin á fætur annarri þessa dagana sem gefur okkur tilefni til að setjast í dómarasætið og dæma klæðaburð stjarnanna – gaman!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com