Kim Kardashian átti afmæli í síðasta mánuði og gaf eiginmaður hennar, Kanye West, henni sérstaka og persónulega afmælisgjöf að þessu sinni.
Afmælispakkinn innihélt Hermés tösku — ekki nóg með það heldur er taskan skreytt af dóttur þeirra, North West. Nú loksins hefur heimurinn fengið að sjá þessa tösku því Kim sást með töskuna á dögunum.
Það er enginn vafi á því að persónulegri gerast fylgihlutirnir varla.
Það virðist vera í tísku í Hollywood að láta börn krassa á rándýra hönnunarvöru til þess að gera þær einstakar. Angelina Jolie hefur líklega startað þessu trendi með brúðarkjólavali sínu.
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com