Hjónin Kim Kardashian West og Kanye West eru andlit nýrrar auglýsingaherferðar fyrir tískurisann Balmain.
Það hefur verið frekar algengt hjá tískuhúsum í ár að hafa þekktar stjörnur sem andlit í herferðum fremur en fyrirsætur. Gefur þar Balmain ekkert eftir og fékk eitt mest umtalaða par heims í lið með sér. Hér má sjá nokkrar myndir sem munu prýða tískutímaritin þegar vorvörur Balmain verða auglýstar:
Dimm og fremur litlaus auglýsingaherferð að þessu sinni – hjónin gefa henni lit, eða hvað?
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com