Þvílíkur draumur væri að eiga svona fallegt skóherbergi.
Er ekki í lagi að dagdreyma annað slagið og dreyma um skóherbergi, skó sem ná frá gólfi til lofts. Háa hæla frá öllum helstu skóhönnuðum heims og heimsins fallegustu stígvél í öllum litum. Í herberginu við hliðiná væri svo fataherbergið, eitt fyrir hann og eitt fyrir hana. Já það kostar ekkert að dreyma.
Ég held ég myndi bara vera þarna inni daginn út og daginn inn. Máta skóna og raða þeim upp aftur og aftur.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.