Hin nýgifta Kate Moss gjörsamlega blómstrar á myndunum sem teknar eru af henni með eiginmanninum Jamie Hince og ég er ekki frá því að hún hafi einnig yngst eftir að hún gifti sig.
Það á greinilega vel við hana að vera orðin eiginkona en fyrirsætan hefur aldrei lítið jafnvel út en einmitt á þessum myndum.
Myndatakan er síliseruð af Marine Braunschvig og ljósmyndarinn er Sonia Sieff en takan er fyrir franska Elle. Kate klæðist fallegum fatnaði frá hönnuðunum Christian Dior, Alberta Ferreti, Marc Jacobs, Balmain, Lanvin og Balenciaga.
Hún virkar verulega yfirveguð og það er nokkurskonar værð og fágun yfir Kate á ljósmyndunum.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.