Tæpum fjórum árum eftir síðustu línuna sína fyrir Topshop, kemur Kate Moss nú með aðra fatalínu í samvinnu við fyrirtækið.
Sjö ár eru síðan Kate og Topshop tóku höndum saman stóð það samstarf til ársins 2010. Eftir dágóða pásu bíða eflaust margir aðdáendur fyrirsætunnar eftir að flíkur úr þessari nýjustu línu hennar komi í verslanir fljótlega.
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=GMLMX17MDv4[/youtube]
Hér fáum við að sjá stutt myndband sem sýnir bak við tjöldin, örstutta frásögn Kate og lítinn part af efnum sem notuð eru.
Þetta litla sýnishorn boðar að minnsta kosti gott. Ég hlakka til að sjá meira!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com