Nýja sumar 2013 Saint Laurent línan var sýnd á dögunum í París. Megnið af tísku-þotuliðinu mætti á sýninguna og að sjálfsögðu var Kate Moss á fremsta bekk með nýja manninum sínum…
…Kate Moss hlýtur að hafa verið sátt með þessa flottu línu en hún einkenndist af rokkaralegum flíkum í bland við smá hippa-glamúr, mjög Kate Moss-legt!
Víðar buxur, maxi-kjólar, risa hattar, pallíettur og leður var sumt af því sem sjá mátti á pallinum.
Geggjuð lína að mínu mati!
Nettur 70’s fílingur í heildarútkomunni!
_________________________________________________________________________________________________________________
Myndir fengnar að láni frá Style.com
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.